

Rokkmessa í Lindakirkju
Rokkkór Íslands verður með rokkað prógram í messu í Lindakirkju sunnudaginn 2.des kl.20:00. Fögnum aðventunni með góðu rokki og smá jóla líka ! Stjórnandi Rokkkórsins og píanóleikari er Matthías V. Baldursson, gítarleikari er Sigurgeir Sigmundsson, á slagverk er Þorbergur Ólafsson og prestur er sr.Guðmundur Karl Brynjarsson.
Allir eru hjartanlega velkomnir :-)


Rokkkórinn í Hörpuhorni
Næstu helgi verður Rokkkórinn á faraldsfæti og mun gleðja fólk með söng sínum tvisvar sinnum. Laugardaginn 1. des verðum við með stutt prógram í Hörpuhorninu kl.13:30 - 13:45 ca og sunnudaginn 2. des verðum við með sannkalaða Rokkmessu í Lindakirkju ásamt hljómsveit skipuð stjórnanda kórsins Matthíasi V. Baldurssyni á píanó, gítarhetjunni Sigurgeiri Sigmundssyni og slagverkssnillingnum Þorbergi Ólafssyni.
Frítt er inn á báða staði, hlökkum til að sjá sem flesta.