Tónleikarnir í Salnum 2.mars 2018
Kærar þakkir fyrir komuna kæru tónleikagestir.
Við byrjuðum með trompi á laginu Africa eftir Toto, og tókum svo restina af lögunum í stafrófsröð það hafði víst engum rokkstjóra dottið það í hug fyrr en þau mistök áttu sér stað að einn kórfélaginn raðaði lögunum upp eftir röð sem hún taldi að væri frá rokkstjóranum sem var svo bara í stafrófstöð, en gekk líka svona meistaralega vel upp.
Africa - Toto
Frábær stemning í salnum og vel hægt að segja að útsetning Rokkstjórans Matta Sax á laginu Run to the Hill hafi slegið í gegn með Ofur Baldur á nikkunni.
Þórdís Rúnars Þórsdóttir myndaði þetta allt saman líka og erum við búin að setja myndir í galleríið okkar hér á vefnum:
Við hlökkum svo til að sjá ykkur í Höllinni þann 18.maí 2018 þegar Rokkkór Íslands tekur þetta lag með Foreigners:
Með þakklæti fyrir komuna og frábæra stemningu
Rokkstjórinn
