Rokkarar slá ekkert af...
og auðvitað hendum við strax í nýja tónleika.
Nú gefst fólki tækifæri á að hlusta á Rokkkór Íslands án hljómsveitar því aðeins verður píanóundirleikur sem rokkstjórinn sér um og slagverk sem verður í höndum Þorbergs Ólafssonar.
Rokkkór Íslands hefur æft í Lindakirkju sl.2 ár og ætlar nú að þakka fyrir sig með kósí tónleikum í kirkjunni og gefa hluta af aðgangseyrinum til Lindakirkju.
Sérstakur gestur verður Löggukórinn, sem er samstarfsverkefni Lögreglukórs Reykjavíkur og Kvennakórs lögreglumanna.
Aðgangseyrir er aðeins 1.500 kr.
