top of page

Coming Up Next

I'm a paragraph. Click here to add your own text and edit me.
Let your users get to know you.

No upcoming events at the moment

Útgáfutónleikar Huldumanna


Við í Rokkkórnum vorum svo heppin að fá að taka þátt í geisladisknum sem Huldumenn voru að gefa út og sungum við einnig með þeim á útgáfutónleikum þeirra í Hlégarði föstudaginn 6.mars 2020. Diskurinn ber nafnið „Þúsund ára ríkinu“ og fæst víða í verslunum og kemur einnig á spotify fljótlega. Við óskum þessum eðal rokkurum til hamingju með gripinn og hlökkum til áframhaldandi samstarfs í náinni framtíð.

Hljómsveitin Huldumenn er skipuð þeim Birgi Haraldssyni söngvara eða "Bigga Gildru", Sigurgeiri Sigmundssyni gítarleikara, Birgi Nielsen trymbli og Ingimundi B. Óskarssyni bassaleikara. Á hljómborð leikur Akureyringurinn og Skriðjökullinn Jóhann Ingvason.


Síðustu fréttir